Framfaratíđ
Ég er farin að stelast reglulega í tölvuna hennar mömmu svo ég get alveg eins bloggað á meðan ég er að því.
Af mér er allt gott að frétta og meira en það en ég fer ekki að tala opinberlega um öll mín málefni en þau eru öll jákvæð.
En af máli málana á þessari síðu, hestunum, já þetta er að verða af hestabloggi hjá mér, ég hvort eð er hef ekki marga sem hlusta af áhuga um þetta áhugamál mitt svo hér fæ ég útrásina.
Hvar á að byrja.... umm... já, ég er búin að velja stóðhestinn sem ég ætla að halda Gabríellu undir næsta sumar.
Hann heitir Tývar frá Kjartansstöðum, kíkið á þenna link ef þið viljið vita meira um hann http://terna.is/stall_tyvar.htm
Folarnir okkar eru stórir og dafna vel

Hann Gáski er stærri en púki þrátt fyrir að vera mánuði yngri, en hann fæddist stærri en Púki mánaðar gamall.
Enda eru foreldrarnir engin smá smíði, svo ætlar hann að verða grár eins og þau... pabbi var farin að vona að hann yrði áfram svona kolsvartur.
En Púki ætlar að verða silfurhærður öðlingur eins og sjá má á þessum myndum, bara farin að borða úr lófa mínum!!

Annars er ekkert að gerast núna þegar allir eru á haustbeit annað en allir eru feitir og líta vel út, sérstaklega Kveikur sem er feitastur :)
Svo í lokin fylgjir hér ein mynd af Styr sem var tekin í vor.

