Könnun

Hversu oft skoðaru þetta blogg?

Auglýsing

Yfirlýsing

Velkomin/n á síðuna mína, hérna ætla ég mér að vera hreinskilin og skrá niður allt sem fer í gegnum huga minn og það sem er að gerast.
endilega kommentið og/eða kvittið í gestabókin.
Takk fyrir

Prófíll

  • Nafn: Sigrún Oddgeirsdóttir
  • Staður: Reykjavík
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Nemi
  • Hjúskaparstaða: Föstu
  • Um mig: ég er bara ég, hef ekki orku að reyna að vera útskýra það einhvað nánar...

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Pabbi hans Styr

03. janúar 2008 klukkan 09:45
jæja nú er Styr að koma á morgun (vonandi) og ég er að deyja úr spenningi og einhver engill hefur bennt mér á myndir af pabba hans til að halda mér geðheilli (mér hlakkar SVO til!)
hérna er hann IS1992155006 Strákur frá Galtanesi

IS1992155006 Strákur frá Galtanesi" alt="Strákur" title="strákur" width="69" height="30">

IS1992155006 Strákur frá Galtanesi" alt="strákur" title="pabbi styr" width="67" height="30">

Krummafóður

15. desember 2007 klukkan 13:54
Ég er komin með viðskiptahugmynd dauðans....

Krummafóður!
langar þér að hafa krummana í þínum garði, leyfðu öðrum að hafa smáfuglanna í friði.
keyptu Krummafóður.

Svoldið öðruvísi en hárið sem ég var með í sumar

12. desember 2007 klukkan 14:40
Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket" alt="eg" title="eg" width="47" height="30">

Eftir áramót..

12. desember 2007 klukkan 14:31
Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket" alt="eg" title="eg" width="47" height="30">
Styr kemur ekki fyrr en eftir áramót, ég fór í hesthúsið og hesturinn sem hann á að deila með bás til áramóta bítur og sparkar í aðra hesta.. greyið litla sem er með honum núna er allur bitinn, svo ég held það sé best að bíða eftir að hann er farinn.
annars er ég byrjuð í póstinum.. þetta er ekki starf fyrir mig, sem betur fer er þetta bara desenberstarf, ég er dauðþreytt og er að pæla að leggjast upp í rúm núna.. svo er síðasta prófið á morgun.

Á laugardaginn

10. desember 2007 klukkan 00:12
hann kemur á laugardaginn
Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket" alt="Þetta er hann Styr" title="Styr" width="120" height="30" align="absMiddle">

Nú brennur tú í mær...

08. desember 2007 klukkan 05:25
Styr er að koma þann 15 des... ég verð með aðstöðu í víðidalnum næstu 6 mánuðina.
Vá hvað mig hlakka til.
búin mað Dauðadjásnin, æðisleg ÆÐISLEG!! hefði samt mátt vera meira djúsí endir, vona að hún geri frh. sögur... ég vil ekki segja neitt af ótta við að einhver sem er ekki búinn að klára lesi þetta en mig grunar að hún hafi undirbúið nýja söguhetju..
Ég byrja að vinna á þriðjudaginn hjá póstinum, hlakka ekkert rosa til, ég er búin að hafa það svo gott núna í vetur, vann líka svoldið úr mér í seinustu vinnunni minni, búin að fá ógeð og vil bara vinna við einhvað sem ég hef áhuga á, vonandi vonandi fljótlega..

Upprisa hins myrkra herra.

26. nóvember 2007 klukkan 17:12

Ég fór í dag og keypti nýju Harry Potter bókina. god ég slefa mig hlakkar svo til að lesa hana.
Þessar bækur eru svo mikil snilld, hver annari betri.
ení hú þá fór ég í annað sinn að sækja um fulltíðnaðarskíreinið, nei núna taka þeir ekki kretidkort svo þetta bíður framm yfir mánaðarmót.
Ef þið ætlið að fara og láta taka af ykkur passamyndir þá mæli ég með básnum í mjóddinni, þú getur endalaust tekið mynd svo veluru eina bara og sértð vel hvernig myndin er.
Ég er svo hégómafull að ég lét prenta út tvær svo ég gæti valið sú allra bestu.

Annað hvort hefur Andrés gert einhvað hræðilegt af sér eða hann bara einfaldlega er indislegasti maður á jörðunni.
Hvernig á maður að bregðast við svona mikilli umhyggju? kossar og blíðuhót hvert sem mar snýr sér... *þetta er ekki of gott til að vera satt, þetta er ekki of gott til að vera satt*...

Ég er svo algerlega stjórnlaus bæði í gerðum og hugsun að ég bara er farin að verða örvætningafull og jafnvel farin að halda að ég líka þjáist af geðhvörfum. En sá geðveiki veit ekki að hann sé geðveikur.. ohhh þetta er óþolandi millibilsástand, að vera og "veik" til að vera eðlileg og of "heilbrigð" til að vera veik... ég er bara einfaldlega skrítin og afbrigðileg....
ég veit ekki einu sinni hvort þetta sé eðlilegt eftir svona áfall eða hvort þetta kom mér í áfallið..
LOL.. nú halda allir að ég sé einhvað andlega sjúk, þetta er nefnilega ekki einhvað sem er talað um er það, jammz það blaðra allir um ef þeir halda að þeir séu komin með flensuna, en ef einhver blaðrar um að halda að vera andlega veikur fer allt í kerfi.
kanski er ég það, það tala einginn um svona svo ég veit ekkert hvort almenningur upplifi sig á punktum sem geðveikan.
pifff... Ég horfi bara á þetta sem hluti af mér og ég veit alveg hvað ég þarf að gera til að verða heil að nýju, en er ég viljug til þess.. það er spurningin...
eða er þetta bara afleiðingar svefnleysis..

...Sofðu unga ástin mín, úti regnið grætur...

25. nóvember 2007 klukkan 04:58

Ég er svo ekki búin að vera að standa mig í prógramminu, þessi árás sló mig alveg útaf laginu.
Ég er ekki búin að kæra og í sé eingan tilgang í því.
Dagarnir eftir þetta voru hræðilegir, allar þessar tilfiningar komu upp og gömul gremja og reiði blossaði, einhvað sem mun drepa mig eða fá mig til að skaða aðra.
Líka mikil skömm sem fylgdi og ég fór næstum ekkert út úr húsi í viku, á sunnudeginum var ég að sæjka Andrés og hvítur bíll var fyrir aftan mig næstum alla leiðina og ég fékk rosalegan ótta að þarna væri gaurinn að elta mig til að gera einhvað.
Þar sem ég á að vera komin langa leið í prógramminu fylgdu líka tilfiningar sem ég ef ekki fundið áður, t.d. að verða svo misboðið að mér var líkamlega óglatt í hvert skipti sem ég hugsaði um atvikið og hvernig hann virtist njóta *hrollur* að handleika mig *hrollur*
Ég held ég sé að jafna mig, í kvöld fór ég og hitti fólk og skemmti mér vel bara örugg já Rakeli og Ómari sem reyndu að verja mig eins og þau gátu thank´s guy´s
LOL.. þegar pabbi var á leiðinni að sækja mig var mamma heima hrædd um að hann myndi drepa einhvern :) já ég elska pabba minn, myndi alltaf koma og bjarga mér.
Í bílnum á leiðinni heim heimtaði hann að ég kæmi í mat daginn eftir og mamma var dugleg að hringja dagana eftir, elska mömmu mína líka rosa mikið :)
Ég lít allavegna á þetta sem svona wake up call til að sýna mér að ég er svo ekki komin yfir allt sem gekk á einu sinni....

Ofbeldisfullir dyraverðir

18. nóvember 2007 klukkan 13:10
Jæja ég var tekin hálstaki og haldin niðri af dyraverði í gær fyrir að labba út af Dubliners og neita að snúa við og fara aftur inn eftir að ég var komin út. þegar lögreglan kom þá spurði einn hvað í anskotanum hvað hann væri að gera, það væri alveg í lagi að meta stöðuna aðeins og spurði hann hvort þetta væru ekki full grófar aðgerðir.
Ég mun kæra hálstakið og fyrir frelsisskerðingu líka...

...eins og morgun döggin sprettur svitinn framm...

17. nóvember 2007 klukkan 03:42

Jæja.... hef voða lítið að segja nema mér hlakkar að hrynja í það á morgun og að Styr komi í bæinn, sakna hans svo mikið.
Þá kanski kemst ég í betra form... úje.....
það sem er að gera mig hamingju sama eru vínkonur sem eru með sömu framtíðarsýn og ég (vera fimmtugar og enn að detta í það og lifa the wild life) kisan mín sem príðir þessa síðu svo vel (lyggur utan í mér akkurat núna:) Bubba lög og hvað ég á sætan kærasta sem var næstum búinn að gera það með mér í blá lóninu, já næstum.....
piff... þessi kastari sem svífur þarna um er ekki til að finna druknandi börn í myrkrinu heldur til að leita uppi ástarfugla út í horni.
Við vorum því líkt heit þarna svo var kastarunum bara beint á okkur og eftir smá stund kom einhver vörður að vappa í kring...
en já annars er allt yndislegt núna vonandi hjá ykkur líka.

Klukkan

Innskráningar kubbur