Könnun

Hversu oft skoðaru þetta blogg?

Auglýsing

Yfirlýsing

Velkomin/n á síðuna mína, hérna ætla ég mér að vera hreinskilin og skrá niður allt sem fer í gegnum huga minn og það sem er að gerast.
endilega kommentið og/eða kvittið í gestabókin.
Takk fyrir

Prófíll

  • Nafn: Sigrún Oddgeirsdóttir
  • Staður: Reykjavík
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Nemi
  • Hjúskaparstaða: Föstu
  • Um mig: ég er bara ég, hef ekki orku að reyna að vera útskýra það einhvað nánar...

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Völvur sögðu til um örlgög manna en seiðkonur reyndu að hafa áhrif á þau...

22. september 2008 klukkan 01:46
Já, þessa dagana stend ég í stöngu um að fá hana Gabríellu skráða.
Ég er búin að hafa uppá ræktanda hennar en það vantar fæðingardag móður. Konan ætlar að athuga hvort hún finni þetta ekki svo ég er vongóð.

En allavegna þá er skutlan mín betur ættuð en ég þorði að vona, já móðir hennar er dóttir Fána frá Hafsteinsstöðum sem fór á Heimsmeistaramótið ´95
Ég bara jáááá.... þarna kemur skeiðið, því hann er með 9,5 fyrir skeið og ef ég er ekki bulla þá sýndist mér á sænskri heimasíðu hans að hann væri heimsmeistari í skeiði....

Photobucket

Allavegna er dóttir hans með met í skeiði, hún Drífa frá Hafsteinsstöðum

Photobucket

Hana ættu allir að kannast við.

Já það get ég sagt ykur að hún Gabríella hefur fengið viðurnefnið "Skutla" af mér vegna þess að í vetur ruddist stelpan með mig bandbrjáluð inná keppnisbrautina í Víðidalnum (á meðan keppni stóð Nota Bene) og skeiðaði út völlinn eins og fjandinn væri á hælunum á henni framhjá öllu fínu tölturunum (hóst hóst og því snobbliði hóst hóst)
Strákur í sama húsi, sem er einstaklega efnilegur knapi, var einmitt að keppa og sá öll ósköpin... hún er nú töluð um sem keppnishryssan...
Þetta kvöld  var mér stítt og var hringt í mig og sagt að þetta hefði komið í sjónvarpið og óskað væri eftir að skeiðhryssan og knapi hennar gæfu sig fram svo hægt væri að veita þeim verðlaun fyrir bestu tilburði keppninar.
Katla.. ég í alvurinni trúði þér í smá stund Ullandi

Já en aftur að honum Fána sem er einstaklega fallegur...
Photobucket


Photobucket

Núna er öllu breytt varðandi framtíðar áform mín með skutlu... hún MUN fara undir skeiðgarp.. ef þú hefur ábendingar um einn svoleiðs commentaðu þá og taktu þátt í að rækta upp einn mesta skeiðhest seinnitíma!
Hlæjandi

Hestur guðanna

17. september 2008 klukkan 18:47

Það er greinilega svipur með henni Gabríellu minni og afa hennar, stórhestinum, Hrafni frá Holtsmúla.
ég rakst á þessa mynd af gæðingnum og brá bara.. ég sá bara skutluna mína á þessari mynd!


Photobucket

Photobucket

Hún er falleg er það ekki Koss
Get ekki beðið eftir að státa mig af folaldinu hennar!

Ég vona svo innilega að ég geti tekið hann Kveik inn í næsta mánuði, ég er búin að bera á nýja hnakkinn og allt.

Ég mun halda áfram með þetta blogg í kvöld, en núna þarf ég að drífa mig til afa míns sem á ekki langt eftir, ég ætla að biðja hann um að stinga uppá nafni fyrir Gabríellu-fyl.

OOOKKKK.... ég er komin aftur, þetta var æðislegt kvöld.
Ég vissi að afi hafði þekkt til Hornafjarðarkynsins í gamladaga, en það er kynið sem Kveikur er næstum hreinræktaður úr, en ég vissi ekki til að hann hafði VIRKILEGA þekkt þessa hesta.
Hann bjó þarna í Hornafirði sem unglingur, ég er ekki viss en hann talaði mikið um Hestana frá Árnanesi og um fólkið þar, gæti verið að hann hafi verið vinnu-gutti þarna.
Hesturinn sem hann hélt mest uppá var Nasi (sennilega Nasi frá Hornafirði í worldfeng) sem Pétur í Árnanesi átti.

Photobucket

Nasi var stór brún-nösóttur-glaseygður og það átti einginn annar hestur roð í hann á keppnist brautinni.
Hann var hraðskreiðastur allra hesta í kappreiðum og það ríkti stórt leyndarmál um hversvegna, því Nasi gekk frjáls í haga alla sína daga þangað til að keppnisdagurinn rann upp.

Afi lofaði eingu um hvernig Nasi stóð sig sem almennur reiðhestur Ullandi

Þar sem ég elska afa svo mikið og það eru góða líkur á því að ég eignist hestfolald að ári með einhvað hvítt á snoppunni mun folaldið heita Nasi ef eftir gengur.
Ég var ákveðin í að skíra hestfolaldið Fönix, en það mun bíða í bili.

Hann sagði mér líka frá hryssunni Óðu-Rauðku frá Árnanesi sem var fædd 1892, hann varð að vita hvort Kveikur sé niðji hennar, því einginn hestur er af Hornafjarðakyninu nema að fera undan henni var sagt í þá daga á Hornafirði.

Við auðvitað sátum föst við tölvuna hennar mömmu að reyna að rekja ættir Kveiks til Árnanesskyninið og auðvitað voru þarna fullt að forfeðrum frá Árnanesi en ekki fundum við Óðu-Rauðku.

Amma var farin að nuða í afa um að fara og hann harðneitaði, vildi bara sitja þarna hjá mér og rekja ættir hestana við hesta sem hann þekkti í den.. svo aðeins seinna þegar það var komin alvara í ömmu sagði hann lágt "mig langar svo að vita hvort kveikur sé undan Óðu-Rauðku" ég bara.. ég skal finna þetta, byrjaði að rekja aftur og á svona mínótu var þetta komið, Kveikur er undan henni Koss

Afi fór ánægður heim og ætlar að reyna meika það framm í næsta mánuð til að fá að berja Kveik augum, svo Sedda þetta verður að ganga eftir Gráta

Lungun í afa eru ónýt og það er ekkert hægt að gera, ekkert.. ég hætti að reykja bráðlega. Afi reykti til þrítugst og hann er viss um að það hafi spilað inní, það er hræðilegt að heyra hversu máttlaus röddin hans er, ég þekki hana varla lengur.

Photobucket

Leirljósagenið

15. september 2008 klukkan 01:30

Átti afmæli þann 12 sept. Ég og andrés eyddum kvöldinu bara heima og vorum með önd í matinn.
Vöknuðum svo á laugardeginum snemma og byjuðum að undirbúa fjölskylduboð og partý.
Ég bakaðai duble súkkulaði muffins, með súkkulaði smjörkremi sem slógu í gegn, og marens kókosbollu tertu með fullt af brejum og ávöxtum, svo var bara snakk, ídýfa og ostar.

Fjölskyldan kom um 5 leytið með ömmu og komu þau færandi hendi, armband, hringur og seðlar.

Um 9 leytið mtti fámennur en góður hópur af vinum og var partýast Koss með tilheyrandi bæjarferð og þar fór skoti í skotapilsi á skeljarnar fyrir Ásdísi frænku, þvílíkir mannasiðir hjá þessum mönnum, allt annað en þessir íslensku tuddar Koss

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Svo í dag vaknaði ég í hádeginu og fór að skoða notaðan hnakk til sölu af gerðinni Top Reiter 2000 og ég keypti hann.
Eftir það lögðum við af stað í Austur-landeyjar að sjá Fjalladís í fyrsta skipti Koss

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Eftir þreytandi bílferð til baka fórum við í læri til pabba, hann gerir besta sunnudagsmatinn, fékk tvö gesti núna í kvöld og nú er ég á leiðinni í rúmmið.

Biblían var skrifuð í ótta, og ótti er djöfullinn

11. september 2008 klukkan 21:50

Í gær hegðaði ég mér frekar undarlega.
Ég var stödd í litlu búðinni á Rauðarárstíg með stelpunum úr vinnunni þegar róni gekk inn.
Hann byrjaði að tala við okkur þar sem við stóðum við afgreiðsluborðið um hversu ómótstæðilegur hann var fyrir konur, sem færðist svo út í að kvennaknatspyrna væri bara konur að leika sér eins og krakkar að leik sem færðist svo yfir að kvenmenn ættu að þjóna karlpeningnum.
Þá var búðamanninum misboðið og sagði að það ætti frekar að vera öfugt, þá æsti róninn sig og sagði að það stæði á fyrstu blaðsíðu í biblíunni og búðamaðurinn sagði: ekki minni

Róninn hélt áfram að vera æstur og endur tók sig í sífellu viss um það að biblían væri áræðanleg heimild sem við gætum ekki afneitað.

Skynndilega sneri ég mér við horfði í augun á honum og sagði: Biblían var skrifuð í ótta, og ótti er djöfullinn og strunasði út.

Já... ég veit ekki alveg hvaðan þetta kom en greinilega mín ómeðvitaða skoðun um þetta mál.

Og í morgun hélt svona undarleg hegðun áfram, ég svaf yfir mig.. ok svo átti ég pantaðan tíma í lit og klipp en ákvað að leggja mig áður en ég stormaði niðrá klippustofu, stillti klukkuna og allt.
Vaknaði til að slökkva á henni en.. það næsta sem ég veit er klukkan margt og Drési er að hringja í mig og bjóða mér að kíkja á útsöluna í Egg.

Koss já stelpur, maðurinn minn spyr hvort ég vilji ekki fara á útsölu Koss
Og já hann er mjög svo á föstu með mér.

Í næsta mánuði mun ég að öllum líkindum taka Kveik í hús Koss
Photobucket

og bara af því að mér finnst gaman að að skoða blogg með myndum þá er hér mynd af stóðhestunum Þristi frá Þorlákshöfn (stóð sig með prýði í sumar og er komin í 1 verðlaun) sem er sá skjótti, og Dímoni frá Neðra-Skarði sem er búin að fylja merina mína (hann er enn ósýndur fyrir hæfileika)

Photobucket

Vetnisperoxíð 6%

09. september 2008 klukkan 23:46
Já lítið að frétta hér, ég á afmæli á föstudaginn, verð 23 ára.. the oldest I ever been Koss

Brjál í vinnunni, allt búið að ganga frekar hægt vegna efnis og límmiðaskorts og nú er allt á fullu.

er voða svöng einhvað núna.. get ekki hætt að langa í lamba-fille ... já það er svo að fara gerast í kvöld Koss

Ég bara verð að segja ykkur.. í dag frétti ég af hlut sem ég hélt að myndi aldrei gerast... Bylgja fékk sér kött!
Já hún Bylgja glamúr tók að sér annan kettlinginn sem er bloggað um hér að neðan.. jáhá nú hugsið þið að hún hlítur að vera einhvað veik og ég get sagt ykkur að það er hún, hún er með lugnabólgu greyið.. já.. og kemmst sennilega ekki í afmælið mitt Fýldur

Afmælið verður á Laugardaginn kl 8 og ég vil peninga í afmælisgjöf Gráðugur

Dímon alltaf flottur.. get ekki beðið eftir folaldinu!

Photobucket

Það er stórt...

08. september 2008 klukkan 09:55
Það var mikið um að vera á Laugardeginum og ætlaði ég að blogg um það loks þegar ég komst heim, en það kveiknaði í hleðslu snúrunni sem sér tölvunni fyrir rafmagni svo ekkert var úr því.

Á Laugardeginum var Gabríella sónuð og flutt uppí Hrútafjörð.

Photobucket

Það var nú aldeilis ferðin sem var fyrir höndum og lánaði mamma krafta stóra Dodge-ins síns í ferðina

Photobucket

Það var mikið um að vera á Neðra-Skarði, það átti að skanna allar hryssur sem voru hjá Dímoni og Landsmótsfaranum Þristi frá Þorlákshöfn og senda þær allar heim.
Það er múgur og margmenni í hesthúsinu þar sem var verið að sóna.

Photobucket

Og viti menn, hryssan er komin 6-8 vikur á leið og sagði dýri að fylið væri stórt og hún myndi kasta snemma

Photobucket

Reynda fólkið á Fjarðarhorni ætlar þá að búast við djöflafylinu í Maí

Um leið og það var búið að sóna var ferðinni haldið áfram norður

Photobucket

Og eftir um 2 tíma (urðum að keyra frekar hægt vegna hversu dýrmætur farangurinn var) sáum við nýja hlaðið á Fjarðarhorni ( það er verið að gera breytingar á þjóðvegi eitt og vegurinn sem var fyrir ofan hús og alveg við útidyrnar hjá þeim, er kominn lengst fyrir neðan, ekki amarlegt Koss

Photobucket

Siggi snyrti aðeins hófana á dömunni á meðan heimalingarnir horðu á og hneggjuðu hástöfum.

Photobucket

Photobucket

Svo var flottustu merinni sleppt í hagann Glottandi

Photobucket

Og kaffi var þegið í bænum

Photobucket

Þá eftir það var Kl orðin 17:30 og við þurftum að bruna í bæinn því við hjónakornin í Spóahólum áttum að mæta á árshátíð á Brodway Kl 19:00
Það gerðum við með nýjast ilminn frá Chanel, úr hestalínunni þeirra Koss

Sjáðu, þau eru saman...

31. ágúst 2008 klukkan 21:15
Í dag skelltum við okkur uppí Leirársveit að kíkja á Gabríellu, það verður sónað næsta laugardag og ég á að vera mætt kl 1 með kerru, tilbúin að koma skutlunni norður í Hrútafjörð.
Það var mikil kyrrð og ró yfir stóðinu og Dímon kallinn orðin svoldið feitur.
Mamma kom með okkur og við ætluðum á fjöldskyldudaginn uppí álveri þar sem var grill í boði... en þurfti endilega að stíga í drullu langt uppfyrir ökla svo við sleptum því.

Við ætluðum að fara til Fjalladísar og taka myndir af stelpunni en fjöldskyldan á Skíðbakka var ekki heima yfir helgina svo það verður sennilega í vikunni, sennilega fyrir helgi þar sem við verðum að fara með skutlana norður.

Við hringdum í manninn í gær og hann spurði hvort við værum ekki til í að hætta bara við... HA!   

já honum fynnst hún svo falleg !! hehe nei við erum búin að vera að hlakka til og gefa henni nafn svo við bara fylgjum fyrri áætlunum. Já það er ekki amarlegur byggingadómurinn sem pabbi hennar fékk og vonandi hefur hún erft þetta allt saman.

Jamm en nú er vinnudagur á morgun og ég fer snemma í rúmmið, dauðþreytt á að vera alltaf dauðþreytt.

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Svo fékk sæta gellan blóm í hárið
 Photobucket

Það er 7.84

29. ágúst 2008 klukkan 14:29
Eftir að við hérna í Spóahólum erum búin að bíða æsi spennt í nokkrar vikur eftir að Sokki pabbi Fjalladísar fengi nýjan dóm núna á dögunum og eru úrslitin loksins komin í hús

Photobucket

IS2003186181 Sokki frá Bakkakoti
Litur: 3510 Jarpur/milli- skjótt
Ræktandi: Sigríður Vaka Jónsdóttir
Eigandi: Sigríður Vaka Jónsdóttir
F: IS1989165520 Óður frá Brún
Ff: IS1980187340 Stígur frá Kjartansstöðum
Fm: IS1981265031 Ósk frá Brún
M: IS1992256620 Frökk frá Hamri
Mf: IS1987186114 Brennir frá Kirkjubæ
Mm: IS1979256620 Skotta frá Hamri
Mál: 143 - 130 - 136 - 64 - 143 - 36 - 45 - 42 - 6,7 - 30,0 - 18,0
Hófamál: Vfr: 7,8 - Va: 8,8
Sköpulag: 8,0 - 8,0 - 8,5 - 8,5 - 9,0 - 8,0 - 8,0 - 8,0 = 8,28
Hæfileikar: 8,0 - 8,0 - 5,0 - 8,0 - 8,0 - 8,0 - 7,5 = 7,54
Aðaleinkunn: 7,84
Hægt tölt: 7,5      Hægt stökk: 8,0     
Sýnandi: Guðmundur Baldvinsson

Jáhá.. hann hefur bætt sig heilmikið og er komin í fyrstuverðlaun fyrir byggingu en rétt sleikir þau í hæfileikunum.. sem er ekki nógu gott fynnst mér hann er með 8 í öllu fyrir utnan nokkur dæmi og hann sýndi ekki skeið. Sjáið þar sem ég hef gert gráan bakgrunn hjá 5,0.. þarna á að koma einkunn fyrir skeið, en þar sem þar er 5.0 þýðir að hann hefur ekki sýnt það. ég er alveg viss um að ef hann hefði sýnt fullnægjandi skeið væri hann orðinn fyrstuverðlauna hestur.
já.. ég hef heyrt að afkvæmi Óðs séu lengi að blómstra svo ég held enn í vonina með hann Sokki bæti sig svo við hérna í Spóahólum höfum einhvað til að monta okkur af.

Undafarna daga hefur verið mikið kisustúss hér á nágrannabæjum. Heimiliskisan í Staðarbakka týndist fyrir rétt rúmum 3 vikum og var það þá í annað sinn nú í sumar sem litli persablendingurinn hreinlega strauk. Það var haldið í vonina en í þetta sinn fannst hún hvergi.
Svo vildi til að fyrir viku var vinkona mín að leita af heimili fyrir lítinn kisustrák sem annars átti að lóga.
Fólkið í staðarbakki vildi ekki ekki sjá það gerast og sama kvöld og átti að sækja hann Eld litla var hringt, litla stroku kisan var fundin og var stödd niðrí 101!
Photobucket

Allavegna þá var hún sótt þar sem hún var í góðu yfirlæti og seinna um kvöldið bárust fregnir frá Asparfelli að bróðir Elds litla hafi verið skilað vegna ofnæmis og nú vantar tveimur litlum kisubræðrum heimili.
Húsfreyjan í Asparfelli hefur tekið ástfóstri við Eld og stendur nú í því að sannfæra bónda sinn um að taka litla krílið að sér.
Litlu kisustrákarnir eru sennilega komin með heimili en enn er ekkert víst, ef þú vilt taka af skarðið og eignast kisu skildu eftir skilaboð hérna á síðunni, the more the merrier.
Photobucket

Það er ekki mikið annað að frétta fyrir utan að ég er komin með einhvað kláða exem á bakið Drésa til mikillar ama hehe enda hann sem þarf að sjá um að sefa svona óþægindi Koss


Ógó ég veit!

Og svo til að vera alveg viss að hún Bylgja verði ánægð Koss
Photobucket
Þetta hýltur a vera í genunum, því gaurinn við hliðana á henni er bróðir hennar

Gamlahárið aftur?

27. ágúst 2008 klukkan 15:29
Jæja fólk... nú vil ég komment!! ætti ég að fá hárið aftur sem ég var með seinasta vetur ?!?!?!
Photobucket

En já.. þeir sem hafa kíkt í gesta bókina sjá að eitt mesta skaðkvendi landsins hefur heimtað að póstaðar verði myndir af sér á þessari sí vinsælu bloggsíðu..
jæja.. það eina sem ég segji nú er bara "be careful what you wish for"
Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket


Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

HAHAHA.. já fyrir þá sem ekki þekkja til þá var hún Bylgja eitt sinn módel og ætti að vita betur
Photobucket

Bívísa & Böttheda = BFF Koss

já.. hef heyrt þetta áður...

26. ágúst 2008 klukkan 20:45
Photobucket
Andrés  orðinn 26 ára! pælið í því... það eru orðin næstum 6 ár síðan ég kynntist tvítugum strák og núna sit ég uppi með 26 ára karl Koss

Annars ekkert að frétta svo sem.. illt í maganum eftir að narta í afganginn af þessari köku frá því í gær, var ein í vinnunni í dag, brjálað að gera svo ég er uppgefin.

Get ekki beðið eftir að kíkja á stelpurnar okkar, Gabríellu og Fjalladís, og pósta fullt af myndum hérna.

Ég ætlaði að ræsa ykkur út í kvöld stelpur.. en ég held að ég nenni ekki í kvöld.

Klukkan

Innskráningar kubbur