Könnun

Hversu oft skoðaru þetta blogg?

Auglýsing

Yfirlýsing

Velkomin/n á síðuna mína, hérna ætla ég mér að vera hreinskilin og skrá niður allt sem fer í gegnum huga minn og það sem er að gerast.
endilega kommentið og/eða kvittið í gestabókin.
Takk fyrir

Prófíll

  • Nafn: Sigrún Oddgeirsdóttir
  • Staður: Reykjavík
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Nemi
  • Hjúskaparstaða: Föstu
  • Um mig: ég er bara ég, hef ekki orku að reyna að vera útskýra það einhvað nánar...

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Sjáðu, þau eru saman...

31. ágúst 2008 klukkan 21:15
Í dag skelltum við okkur uppí Leirársveit að kíkja á Gabríellu, það verður sónað næsta laugardag og ég á að vera mætt kl 1 með kerru, tilbúin að koma skutlunni norður í Hrútafjörð.
Það var mikil kyrrð og ró yfir stóðinu og Dímon kallinn orðin svoldið feitur.
Mamma kom með okkur og við ætluðum á fjöldskyldudaginn uppí álveri þar sem var grill í boði... en þurfti endilega að stíga í drullu langt uppfyrir ökla svo við sleptum því.

Við ætluðum að fara til Fjalladísar og taka myndir af stelpunni en fjöldskyldan á Skíðbakka var ekki heima yfir helgina svo það verður sennilega í vikunni, sennilega fyrir helgi þar sem við verðum að fara með skutlana norður.

Við hringdum í manninn í gær og hann spurði hvort við værum ekki til í að hætta bara við... HA!   

já honum fynnst hún svo falleg !! hehe nei við erum búin að vera að hlakka til og gefa henni nafn svo við bara fylgjum fyrri áætlunum. Já það er ekki amarlegur byggingadómurinn sem pabbi hennar fékk og vonandi hefur hún erft þetta allt saman.

Jamm en nú er vinnudagur á morgun og ég fer snemma í rúmmið, dauðþreytt á að vera alltaf dauðþreytt.

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Svo fékk sæta gellan blóm í hárið
 Photobucket

Það er 7.84

29. ágúst 2008 klukkan 14:29
Eftir að við hérna í Spóahólum erum búin að bíða æsi spennt í nokkrar vikur eftir að Sokki pabbi Fjalladísar fengi nýjan dóm núna á dögunum og eru úrslitin loksins komin í hús

Photobucket

IS2003186181 Sokki frá Bakkakoti
Litur: 3510 Jarpur/milli- skjótt
Ræktandi: Sigríður Vaka Jónsdóttir
Eigandi: Sigríður Vaka Jónsdóttir
F: IS1989165520 Óður frá Brún
Ff: IS1980187340 Stígur frá Kjartansstöðum
Fm: IS1981265031 Ósk frá Brún
M: IS1992256620 Frökk frá Hamri
Mf: IS1987186114 Brennir frá Kirkjubæ
Mm: IS1979256620 Skotta frá Hamri
Mál: 143 - 130 - 136 - 64 - 143 - 36 - 45 - 42 - 6,7 - 30,0 - 18,0
Hófamál: Vfr: 7,8 - Va: 8,8
Sköpulag: 8,0 - 8,0 - 8,5 - 8,5 - 9,0 - 8,0 - 8,0 - 8,0 = 8,28
Hæfileikar: 8,0 - 8,0 - 5,0 - 8,0 - 8,0 - 8,0 - 7,5 = 7,54
Aðaleinkunn: 7,84
Hægt tölt: 7,5      Hægt stökk: 8,0     
Sýnandi: Guðmundur Baldvinsson

Jáhá.. hann hefur bætt sig heilmikið og er komin í fyrstuverðlaun fyrir byggingu en rétt sleikir þau í hæfileikunum.. sem er ekki nógu gott fynnst mér hann er með 8 í öllu fyrir utnan nokkur dæmi og hann sýndi ekki skeið. Sjáið þar sem ég hef gert gráan bakgrunn hjá 5,0.. þarna á að koma einkunn fyrir skeið, en þar sem þar er 5.0 þýðir að hann hefur ekki sýnt það. ég er alveg viss um að ef hann hefði sýnt fullnægjandi skeið væri hann orðinn fyrstuverðlauna hestur.
já.. ég hef heyrt að afkvæmi Óðs séu lengi að blómstra svo ég held enn í vonina með hann Sokki bæti sig svo við hérna í Spóahólum höfum einhvað til að monta okkur af.

Undafarna daga hefur verið mikið kisustúss hér á nágrannabæjum. Heimiliskisan í Staðarbakka týndist fyrir rétt rúmum 3 vikum og var það þá í annað sinn nú í sumar sem litli persablendingurinn hreinlega strauk. Það var haldið í vonina en í þetta sinn fannst hún hvergi.
Svo vildi til að fyrir viku var vinkona mín að leita af heimili fyrir lítinn kisustrák sem annars átti að lóga.
Fólkið í staðarbakki vildi ekki ekki sjá það gerast og sama kvöld og átti að sækja hann Eld litla var hringt, litla stroku kisan var fundin og var stödd niðrí 101!
Photobucket

Allavegna þá var hún sótt þar sem hún var í góðu yfirlæti og seinna um kvöldið bárust fregnir frá Asparfelli að bróðir Elds litla hafi verið skilað vegna ofnæmis og nú vantar tveimur litlum kisubræðrum heimili.
Húsfreyjan í Asparfelli hefur tekið ástfóstri við Eld og stendur nú í því að sannfæra bónda sinn um að taka litla krílið að sér.
Litlu kisustrákarnir eru sennilega komin með heimili en enn er ekkert víst, ef þú vilt taka af skarðið og eignast kisu skildu eftir skilaboð hérna á síðunni, the more the merrier.
Photobucket

Það er ekki mikið annað að frétta fyrir utan að ég er komin með einhvað kláða exem á bakið Drésa til mikillar ama hehe enda hann sem þarf að sjá um að sefa svona óþægindi Koss


Ógó ég veit!

Og svo til að vera alveg viss að hún Bylgja verði ánægð Koss
Photobucket
Þetta hýltur a vera í genunum, því gaurinn við hliðana á henni er bróðir hennar

Gamlahárið aftur?

27. ágúst 2008 klukkan 15:29
Jæja fólk... nú vil ég komment!! ætti ég að fá hárið aftur sem ég var með seinasta vetur ?!?!?!
Photobucket

En já.. þeir sem hafa kíkt í gesta bókina sjá að eitt mesta skaðkvendi landsins hefur heimtað að póstaðar verði myndir af sér á þessari sí vinsælu bloggsíðu..
jæja.. það eina sem ég segji nú er bara "be careful what you wish for"
Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket


Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

HAHAHA.. já fyrir þá sem ekki þekkja til þá var hún Bylgja eitt sinn módel og ætti að vita betur
Photobucket

Bívísa & Böttheda = BFF Koss

já.. hef heyrt þetta áður...

26. ágúst 2008 klukkan 20:45
Photobucket
Andrés  orðinn 26 ára! pælið í því... það eru orðin næstum 6 ár síðan ég kynntist tvítugum strák og núna sit ég uppi með 26 ára karl Koss

Annars ekkert að frétta svo sem.. illt í maganum eftir að narta í afganginn af þessari köku frá því í gær, var ein í vinnunni í dag, brjálað að gera svo ég er uppgefin.

Get ekki beðið eftir að kíkja á stelpurnar okkar, Gabríellu og Fjalladís, og pósta fullt af myndum hérna.

Ég ætlaði að ræsa ykkur út í kvöld stelpur.. en ég held að ég nenni ekki í kvöld.

Segðu einhvað.. fljótur!... Svar: Meee

24. ágúst 2008 klukkan 21:02

Í kvöld reyndi ég að búa til Habibi sósu.. en það mistókst.
Við eyddum um tvö tíma í það að úrbeina og afskinna kjútlinga vængi. isss... ég gefst upp. ég hef ekki hugmynd um það hvað er í þessari blessuðu Red Onion sósu.

umm voðs lítið að frétta í hestamálum, höfum ekkert séð til þeirra í mánuðinum vegna peningaleysis. Okkur dauð hlakkar til að að sjá Fjalldís litlu sem er sennilega orðin frekar stór og komin úr fæðingarhárunum og byrjuð að vaxa vetrarfeld, en mest langar mig þó að sjá hana Gabríellu og skella mér á bak Kveiks SEM ÉG HEF EKKI HAFT TÆKIFÆRI Á SÍÐAN ÉG EIGNAÐIST HANN!

Svo þar sem ég hef ekkert merkilegt að blogga um þá tla ég bara að koma með smá myndasýningu

Ég og Ollý
Photobucket
Ég og Patti.. já já. ég lít út eins og móngólíti á þessari mynd
Photobucket

Og svo fallegustu verðandi foreldrar í heimi.. Dímon og Gabríella
Photobucket
Photobucket

Ég var alveg ... svona ...

21. ágúst 2008 klukkan 02:14

Jæja.. kíkti aðeins á þetta myspace hjá ykkur stelpur.. var ekkert impressed svo sem.. ekkert bloggað né uppfært.
Ég ætla bara að halda mér í gamla tímanum og halda áfram að vera á bara svona venjulegri íslenskri blogg síðu.. líkar það bara best.

Nema.. hún Nína vínkona (eða á ég að segja x-VÍN-kona Gráta) stóð uppúr.. var með fullt af myndum af mér Koss
Stelpur þið ættuð að taka hana Nínu til fyrirmyndar, enda er hún með þeim gáfuðu Koss

Margar þessara mynda voru svoldið gamlar og minntu á þá tíð þegar ég átti vínkonur sem aksullí neytu víns og þeirra gleðistunda sem með fylgdu

Ég fyrir 2 árum
Photobucket
Svo ein af mér og Nínu
Photobucket
Svo ein af Nínu henni til heiðurs
Photobucket

Já já.. Ég vil bara láta ykkur vita að afmælið mitt er von bráðar og það verður skyldumæting/ölvun

Ég verð þó að viðurkenna að hún Ollý Polly Nalapudi og hennar patsí lætur sig sjaldan vanta þegar menn koma saman með spírutus forte útþynntan með sykri eða geri.

Þeir eru í jakkanum sem Oddgeir Hlífar átti einu sinni

17. ágúst 2008 klukkan 15:24

Sko ég er bara að blogga til að hafa ástæðu til að fara ekki að skúra.. ohhh ok ég er að fara!

Það var eins og pollur í kringum hann!

17. ágúst 2008 klukkan 01:47
Ég er vakandi og ég veit ekki afhverju, það er óþolandi dagskrá í gangi og ég er með þreytu hausverk og ég þarf að vakna í fyrramálið að kíkja á hestanna.

Guðný vinkona gistir í litla herberginu í nótt, mindfreak-ið í sjónvarpinu fellir pálmatré með berum höndum og það er jurassic park veður úti.

Í sætari heimi væri ég búin að rúlla niður í vídeó heima og leigja eldgamla hryllingsmynd og ég og Andrés færum svo í vatnsrúmmið hans í laufenginu að kúra.

Vá hvað ég farin að vera þunglynd... spurning um að drulla sér á fund, þetta er búin að vera fín pása.

Photobucket

Grænt epli, rautt epli

14. ágúst 2008 klukkan 23:37
Sko.. ekkert mikið að reporta hér.. Dís er fylfull við Kjarna frá þjóðólfshaga  og Gabríella við Dímon frá Neðra-skarði
Photobucket
Photobucket
Og ég er komin með nýjan hest, kveikur frá Álfhólum óumdeildur gæðingur Koss Biðjum bara um að það rigni ekki alla helgina, þá gæti verið að við förum nokkur í hagan og skellum okkur í smá reiðtúr.
Photobucket
Ég og Drési minn erum langt gengin með hestabakteríuna sem áður og hefur maðurinn minn keypt sér folald sem mun bera nafnið Fjalladís.
Photobucket
Hún er undan Frostrós frá Hólmum sem er leirljós og Sokka frá Bakkakoti sem er dökk jarpur skjóttur, arfhreinn að mér sýnist.
Photobucket
Næsta sumar mun Gabríella fara undir með einu skilyrði... að hún fari undir Seið frá Flugumýri... ég er ekki viss á folatollinum en það verður sparað og pantað snemma!
Photobucket
Myndina tók ég sjálf á LM Koss
Á LM kolféll ég fyrir Krumma frá Blesastöðum 1A
Krummi
og var ákveðið þar og nú að að hún Garíella litla færi til hans, en nei, örlögin höfðu önnur plön og og er Krummi á leið til Danmerkur til að auka kyn sitt þar...
Þá voru góð ráð dýr og ég fór að horfa hýru auga á Grunn frá Grund
Photobucket
en.. ég hef einhver tilfiningu sem hrindir mér frá því.. svo Seiður it is.

Djammiði mikið nú það sem er af ágúst og mun ekki láta sjá mig á menningarnótt.
Þá er það komið nóg héðan úr Spóahólunum, takk fyrir mig í bili. Koss
Photobucket

Klukkan

Innskráningar kubbur